Blephasol Duo er mjög mildur farðahreinsir, inniheldur Micellar hreinsivatn til daglegrar notkunar á viðkvæm augnlok. Hreinsirinn fjarlægir óhreinindi og augnmálnningu af augnlokum og neðsta hluta augnhára.
Regluleg farðahreinsun er oft of ágeng fyrir þunna húðina í kringum augað og getur því stuðlað að þurrki og ertingu. Þess í stað fjarlægir micellar vatnið varlega farða, jafnvel vatnsheldan án þess að stinga og skilur húðina eftir hreina og raka.
Hreinsivatnið kemur í 100 ml flösku ásamt 100 klútum.
Fæst í öllum helstu apótekum.