Augnhvíla sem ekki þarf ofn eða örbylgjuofn til að hita upp. Einnig hægt að nota kalt ef sett er í ísskáp.
Ferðaaugnhvílan er virkjuð með að smella á disk inní augnhvílunni sem myndar hita, heldur hita í meira en 20 mínútur.
Notkun á augngrímunni getur dregið úr einkennum ýmissa augnsjúkdóma og fylgikvilla, s.s. augnþurrks og hvarmabólgu.
Eftir virkjun og meðferð þarf að endurstilla grímuna í fyrra ástand með því að setja hana í sjóðandi vatn.
Hægt að virkja í allt að 100 skipti.
Einnitg er hægt að nýta augnhvíluna kalda, beint úr ísskáp til þess að róa og sefa pirring í augum í tengslum við ofnæmi eða bólgur.
Fæst í öllum helstu apótekum.