Thealoz DUO dregur nafn sitt af tvöfaldri virkni dropanna. Þeir innihalda bæði trehalósa & hyaluronic sýru. Lausnin er án rotvarnarefna og má nota í 3 mánuði eftir opnun.
- Thealoz Duo styrkir tárafilmuna sexfalt lengur en hýalúronsýra ein og sér.
- Marktæk aukning verður á þykkt tárafilmunnar, sem verndar augað.
- Áhrifin vara í 4 klukkustundir, samanborið við 40 mínútur með hýalúronsýru.
Trehalósi:
náttúrulegt efni sem finnst hjá mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Eðlis- og efnafræðilegir eiginleikar trehalósa gefa efninu verndandi, andoxandi og rakagefandi eiginleika. Þeir vernda og stuðla að jafnvægi í frumuhimnum með því að hindra skemmdir á próteinum og lípíðum, auk andoxunaráhrifa.
Hýalúronsýra:
Hana er að finna í augunum og hefur einstaka getu til að binda vatn. Hjálpar til við að smyrja og viðhalda táravökvanum á yfirborði augans.
Fæst í apótekum.